Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) átelur ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að steypa íslenskri þjóð í skuldaánauð með því að samþykkja, það sem getur ekki kallast annað en fyrirvaralaus ríkisábyrgð á Icesave samningunum.

Þetta kemur fram í ályktun frá SUS en ungir sjálfstæðismenn krefjast þess að „Alþingi standi í lappirnar og fallist ekki á ný lög um rangláta og fyrirvaralausa ríkisábyrgð,“ eins og það er orðað í álytkuninni.

Þá segir SUS að vilji Bretar og Hollendingar fá úr því skorið hvort Íslendingum beri að greiða þessa skuld, geta þeir leitað til dómstóla.

„Ungir sjálfstæðismenn hafa áður bent á að ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tekur þátt í að kúga Ísland til óhagstæðrar niðurstöðu í þessu máli, þá sé það skylda stjórnvalda að vekja athygli á því á alþjóðlegum vettvangi. Slíkur fantaskapur er misnotkun á alþjóðlegum stofnunum,“ segir jafnframt í ályktuninni og tekið er fram að verulegur vafi sé á því hvort íslenska ríkinu beri lagaleg skylda til að greiða þennan reikning – enda þyrfti Alþingi ekki að samþykkja sérstaka ríkisábyrgð á samningunum ef skyldan væri skýlaus.

„Það að hverfa frá þeim fyrirvörum sem settir voru við samningana kallar aðeins á að ungt fólk verði alla sína ævi að greiða fyrir afglöp ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna,“ segir í ályktuninni.

„Slík niðurstaða er ekki boðleg landi og þjóð. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur algjörlega mistekist að koma sjónarmiðum Íslendinga á framfæri á erlendum vettvangi – þrátt fyrir að hafa setið að völdum í tæpa níu mánuði og ítrekað verið bent á nauðsyn þess að halda uppi slíkri málsvörn. Minnimáttarkennd og undirlægjuháttur ríkisstjórnarinnar gagnvart erlendum aðilum í þessu máli er staðreynd."