Ungir sjálfstæðismenn telja að rekstur Orkuveitunnar sl. rúman áratug sanni það sem ungir sjálfstæðismenn hafa áður sagt; samkeppnis- og áhætturekstur er betur kominn í höndum einkaaðila en stjórnmálamanna, sem horfa í besta falli 4 ár fram í tímann.

Þetta kemur fram í ályktun stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna þar sem ungir sjálfstæðismenn segjast hafna þeirri „hugmyndafræði sem meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar í Reykjavík beitir á íbúa höfuðborgarsvæðisins,“ eins og það er orðað í ályktuninni.

„Að velta eigin vanda yfir á aðra sýnir í raun sama ráðleysi og sést hefur í fjármálum ríkisins. Gjaldskrárhækkanir Orkuveitunnar eru ekkert annað en dulbúin skattheimta,“ segir í ályktun SUS.

„Mislukkaðar fjárfestingar fyrirtækisins, sem hafa ekkert með orkuveitu á höfuðborgarsvæðinu að gera, hafa kostað skattgreiðendur gríðarlegar fjárhæðir.“

Þá segja ungir sjálfstæðismenn að æskilegt sé að auka hlutafé Orkuveitu Reykjavíkur og bjóða það hlutafé einkaaðilum til kaupa í opnu ferli. Slíkt geti komið í staðinn fyrir þá tugi prósenta hækkun á gjaldskrá fyrirtækisins sem boðuð hefur verið, auk þess sem það gæti lækkað skuldir fyrirtækisins og fjármagnað frekari virkjanaframkvæmdir og atvinnuuppbyggingu.

„Að sama skapi er eðlilegt að kröfuhöfum Orkuveitunnar verði boðið að breyta skuldum í hlutafé, enda er ljóst að gjaldskrárhækkanir og niðurskurður í rekstri mun lítið breyta gífurlegri skuldsetningu félagsins,“ segir loks í ályktun SUS.