Samband ungra sjálfstæðismanna hefur skorað á Illuga Gunnarsson að standa ekki í veg fyrir lækkun útvarpsgjalds um 1.400 krónur á mann.

Álytkunin segir að hægt sé að uppfylla hlutaverk Ríkisútvarpsins með öðrum og hagkvæmari leiðum en með rekstri á ríkisstofnun. Ríkisútvarpið hafi tapað 800 milljónum króna frá árinu 2007 og svo virðist sem að tapinu sé alltaf hægt að velta á íslenska skattgreiðendur.

SUS segir að betra væri t.d að stofna sérstakan styrktarsjóð fyrir framleiðslu á innlendu efni eða til varðveislu á menningararfleifð og sögu þjóðarinnar. SUs bendir einnig að að samkeppni á fjölmiðlamarkaði verður ekki tryggð að fullu fyrr en ríkið dregur sig alfarið af markaðinum

Ályktun SUS í heild sinni:

,,Samband ungra sjálfstæðismanna skorar á Illuga Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, að berjast fyrir skattalækkunum fyrir heimilin í landinu, með því að standa ekki í vegi fyrir lækkun útvarpsgjaldsins um 1.400 krónur á mann.

Hægt er að uppfylla grunnhlutverk Ríkisútvarpsins með öðrum og hagkvæmari leiðum en rekstri á ríkisstofnun sem ber sig ekki að óbreyttu. Ríkisútvarpið hefur tapað 800 milljónum króna frá árinu 2007 og virðist sem að alltaf sé hægt að velta tapinu yfir á íslenska skattgreiðendur.

Nýleg skýrsla nefndar um málefni Ríkisútvarpsins sýnir einnig að stofnunin nær varla að sinna því hlutverki sem henni ber. Er kominn tími til þess, líkt og segir í samþykkt nýliðins landsfundar Sjálfstæðisflokksins að endurskilgreina þörf samfélagsins fyrir ríkisfjölmiðil. Þá hefur ohf-formið ekki náð að sýna gildi sitt, og væri því rétt að leggja Ríkisútvarpið ohf. niður í núverandi mynd.

Það er mikill misskilningur að íslensk menning þrífist ekki án aðkomu Ríkisútvarpsins. Þeim fjármunum, sem varið hefur verið í óhagkvæman rekstur stofnunarinnar, hefði getað verið mun betur varið, til dæmis með sérstökum styrktarsjóð fyrir framleiðslu innlends efnis, eða til varðveislu á menningararfleifð og sögu þjóðarinnar. Samkeppni á fjölmiðlamarkaði verður ekki tryggð að fullu fyrr en ríkið dregur sig alfarið af markaðinum."