Veitingastaðurinn Sushisamba hefur hefur breytt um nafn og heitir nú Sushi Social.

Fyrirtækið varð að skipta um nafn í kjölfar þess að dómur féll í Hæstarétti Sushisamba í óhag. Samba LLC hafði rekið veitingastaði undir vörumerkinu sushisamba í Bandaríkjunum og hafði fengið nafnið skráð þar árið 2000.

Á vefsvæði Sushi Social segir þó að ekkert annað en nafnið á staðnum, vefnum og heimasíðunni breytist. Einnig segir í tilkynningu frá Sushi Social: „[Þau] eru ennþá með sama góða matinn, sama djúsí sushíið, sömu góðu kokteilana og stemninguna.“

Tom Cruise var einn af áhrifavöldum nafnadeilunnar en hann snæddi á sushi-staðnum árið 2012 með Katie Holmes þegar hann var hér á landi við tökur á myndinni Oblivion. Sushisamba þurfti jafnframt að greiða bandarísku keðjunni 1,5 millj­ ónir fyrir að hafa notað nafnið sem og að greiða 2 milljónir í málskostnað.