Svafa Grönfeldt, sem sat í bankaráði Landsbankans fyrir hrun, segir að hún hafi ekki haft vitneskju um þau viðskipti sem skilanefnd bankans telur bankaráð bankans auk bankastjóra ábyrg fyrir. Skilanefnd bankans hefur sent bankaráðsmönnum og bankastjórum bréf þar sem þeim er gefin kostur á að andmæla því sem þar kemur fram. Bankaráðið er sakað um vanrækslu í starfi fyrir fall bankans.

Yfirlýsing frá Svöfu Grönfeldt:

„Í tilefni um umfjöllun fjölmiðla um bréf sem skilanefnd og slitastjórn Landsbanka Íslands hafa sent fyrrum stjórnarmönnum bankans, vil ég á þessu stigi að eftirfarandi komi fram:

Fall íslensku viðskiptabankanna í október 2008 var mér erfið raun, rétt eins og öllum öðrum.  Ég átti þá sæti í bankaráði Landsbankans.  Mér hefur borist bréf skilanefndar og slitastjórnar bankans, þar sem óskað er eftir sjónarmiðum mínum og skýringum varðandi tiltekin viðskipti sem ég hafði ekki vitneskju um að fram hefðu farið og voru aldrei borin undir mig, hvorki á fundum í bankaráði eða annars staðar.  Ég hef komið til fundar við slitastjórn bankans samkvæmt beiðni hennar og svarað þar öllum spurningum sem til mín var beint.  Ég hef sömuleiðis verði kvödd til skýrslugjafar hjá embætti sérstaks saksóknara sem vitni en ekki sakborningur.  Ég mun hér eftir sem hingað til veita allar þær upplýsingar sem ég get og þörf kann að vera fyrir við athugun á málefnum bankans.

Ég árétta að þau mál sem tilgreind eru í bréfinu sem að ofan greinir vissi ég ekki um fyrr en nú fyrir skemmstu.  Nú er mér ætlað að skýra sjónarmið mín varðandi hugsanlega bótaábyrgð á tjóni sem bankinn varð fyrir vegna aðgerða stjórnenda hans á síðustu klukkutímum fyrir fall hans.  Það mun ég gera, en meðan þau mál eru til athugunar hjá skilanefnd og slitastjórn bankans get ég eðli málsins samkvæmt ekki tjáð mig um þau opinberlega.

Svafa Grönfeldt“