Svanbjörn hefur sagt starfi sínu lausu hjá Flögu Group hf. að eigin ósk og mun hann láta af störfum þann 31. mars 2005, en vera stjórn félagsins til ráðgjafar til loka júní 2005.

Svanbjörn hefur starfað sem forstjóri sl. fjögur ár og hefur ásjóna fyrirtækisins tekið miklum breytingum undir hans stjórn. Flaga Group er nú orðið alþjóðlegt fyrirtæki með kaupum þess á Medcare Diagnostics árið 2002 og Sleep Tech árið 2004. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 2003 og hefur tekjugrunnur félagsins u.þ.b. sexfaldast í forstjóratíð hans.

Í tilkynningu frá félaginu er Svanbirni þökkuð vel unnin störf um leið og hún óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Bogi Pálsson mun verða starfandi stjórnarformaður þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn af félaginu.