Svanbjörn Thoroddsen er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Svanbjörn hefur verið ráðgjafi hjá KPMG frá 2009 og var stjórnarformaður félagsins 2015-2020. Áður en hann hóf störf hjá KPMG hafði hann verið framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Straums fjárfestingarbanka á Íslandi, forstjóri Flögu og framkvæmdastjóri hjá FBA og Íslandsbanka.

Svanbjörn tekur við af Benedikt K. Magnússyni, sem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála hjá Orkuveitu Reykjavíkur, eins og Viðskiptablaðið greindi frá.