Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1. sæti fyrir alþingiskosningarnar í Reykjavík en forval verður haldið þar á vegum VG í Reykjavík þann 7. mars.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Svandísi en forvalið er opið öllum félögum í VG í Reykjavík.

„Við þurfum að vera fleiri til að lyfta málstað, stefnu og hugsjónum VG upp í ljósið,“ segir Svandís í tilkynningu.

„VG er sterkasta rödd félagshyggju, kvenfrelsis og grænna sjónarmiða á Íslandi. Einmitt nú er mikilvægt að Vinstri græn séu sterkari en nokkru sinni fyrr, - einmitt vegna kreppunnar.“

Hún segir Vinstri græn jafnframt hafa kjark og málefnalegan styrk til þess að bjóða íhaldinu birginn. Nú þurfi að verja almenning í nýju þjóðfélagi miklu lakari lífskjara en áður.

„Við tölum máli þeirra sem hafa misst vinnuna sína, þess fólk sem stendur höllum fæti og er að missa eignir sínar og framfærslu. Við höfum kjark til að ráðast gegn sjónarmiðum peningaaflanna. Við erum ekki flækt í net hagsmuna og fyrirgreiðslu og getum þess vegna talað skýrt og gengið hreint til verks,“ segir Svandís í tilkynningunni.

Svandís er fædd 1964 og segist hafa langa reynslu af lífinu, ýmsum störfum og uppeldi fjögurra barna. Hún starfaði að réttindamálum heyrnarlausra frá 1992-2006 við rannsóknir og kennslu í táknmálsfræðum og túlkun við Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og Háskóla Íslands. Auk þess hafi hún verið borgarfulltrúi frá vorinu 2006.