Svandís Svavarsdóttir, fráfarandi umhverfisráðherra, var á fundi þingflokks Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs (VG) í dag, kjörin formaður þingflokksins. Stjórn þingflokksins situr eitt ár í senn. Björn Valur Gíslason var áður formaður þingflokksins.

Fram kemur í tilkynningu frá flokknum að Árni Þór Sigurðsson er nýr varaformaður þingflokks VG og Lilja Rafney Magnúsdóttir er ritari.