Svanhildur Hólm Valsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Svanhildur hefur síðustu ár starfað sem aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, með stuttri viðdvöl í forsætisráðuneytinu, en hún vann einnig við fjölmiðla um árabil.

Svanhildur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur störf 1. desember næstkomandi.

„Við erum afar spennt að fá Svanhildi til liðs við okkur. Hún hefur mikla reynslu og þekkingu á efnahags- og viðskiptalífinu sem er dýrmætt á þessum víðsjárverðu tímum. Viðskiptaráð er mikilvæg rödd íslensks atvinnulífs og hjá okkur eru spennandi verkefni framundan, sem Svanhildur mun koma inn í af krafti,“ er haft eftir Ara Fenger, formanni Viðskiptaráðs, í tilkynningunni.