Sævar Freyr Þráinsson hefur verið ráðinn forstjóri Símans. Sævar Freyr mun taka við starfinu af Brynjólfi Bjarnasyni 1. nóvember næstkomandi. Í tilkynningu kemur fram að Brynjólfur mun einbeita sér að starfsemi Skipta, móðurfélags Símans, Skjásins, Mílu, þjónustufyrirtækisins Já og fleiri félaga en hann hefur gegnt forstjórastarfi þar samhliða starfi sínu hjá Símanum.
Sævar Freyr hefur starfað hjá Símanum frá 1995. Hann hefur undanfarin þrjú ár verið í framkvæmdastjórn Símans, fyrst sem framkvæmdastjóri farsímasviðs og nú síðast sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs. Sævar Freyr situr í stjórn nokkurra fyrirtækja í eigu Skipta, þ.á.m. Sensa, Aerofone í Bretlandi, BusinessPhone í Danmörku og Nordisk Mobiltelefon sem er með starfsemi í Noregi og Svíþjóð.
Sævar Freyr lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi og útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1995. Hann er 36 ára gamall, kvæntur Hafdísi Hannesdóttur geislafræðingi og eiga þau 3 börn.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta, segir í tilkynningu Símann vera eina mikilvægustu eign Skipta: “Framundan eru fjölmörg spennandi vaxtartækifæri sem byggja á þeirri hæfni og þekkingu sem býr í starfsmönnum Símans. Sævar Freyr er búinn að vera lengi hjá Símanum og gjörþekkir reksturinn og markaðinn. Ég óska honum velfarnaðar í starfi og veit að Síminn mun áfram verða leiðandi félag undir hans stjórn.” Brynjólfur segir að nú muni hann beina kröftum sínum að því að efla Skipta samstæðuna enda mörg spennandi verkefni framundan bæði hérlendis sem erlendis. “Skráning Skipta í OMX kauphöllina er eitt þeirra verkefna sem unnið er að og hefur í för með sér ýmis tækifæri fyrir félagið” segir Brynjólfur.
Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Símans segir að mörg spennandi verkefni séu framundan hjá Símanum. “Síminn kemur við sögu í lífi flestra landsmanna, er í fremstu röð í heiminum í gagnvirku sjónvarpi og okkar markmið er að auðga líf landsmanna með samspili internets, farsíma og talsímaþjónustu. Síminn hefur jafnframt sett sér það markmið til lengri tíma að verða öflugt félag í fjarskiptum og upplýsingatækni fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á Norðurlöndum og Bretlandi. Mitt verkefni verður að ná fram enn aukinni arðsemi í rekstri Símans og vinna með öflugu samstarfsfólki að því að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og nýta vel þau vaxtartækifæri sem félagið hefur.”