Barr Pharmaceuticals segir að fyrirtækið sé nú að fara yfir tilboð Actavis í Pliva og að vænta megi svars fyrir 8. september, segir í frétt Dow Jones.

Barr gerði áður formlegt tilboð í Pliva 18. ágúst sem stóð í 30 daga og væntir Barr nú þess að tilboðið verði framlengt í 30 daga frá útgáfu formlegs tilboðs Actavis, segir í fréttinni.

Barr segir að Pliva bjóði upp á stórkostlega möguleika, en sérfræðingar búast við að Barr muni hækka tilboð sitt.