Enn þyngist brún landans og er langt í að hann geti talist vera bjartsýnn á ástand og horfur í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar, samkvæmt Væntingavísitölu Gallup fyrir aprílmánuð sem birt var nú í morgun. Vísitalan lækkaði þriðja mánuðinn í röð. Að þessu sinni lækkaði hún um 2,3 stig milli mánaða og mældist gildi hennar 55,5 stig sem er svipað og það var í apríl fyrir ári. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitalan að meðaltali mælst rúm 57 stig og er því ljóst að landinn er heldur svartsýnni nú en hann hefur að jafnaði verið á þessu tímabili.

Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka í dag. Vísitalan mælir væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins. Þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en bjartsýnir.

Í umfjöllun greiningar kemur fram að allar undirvísitölur lækkuðu milli mars og apríl, að undanskildu mati á efnahagslífinu. Þannig lækkuðu væntingar íslenskra neytenda til aðstæðna í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar eftir 6 mánuði um 2,3 stig og mælist sú vísitala nú 86,0 stig. Mat á núverandi ástandi lækkaði einnig um 2,3 stig, en sú vísitala mælist aðeins 9,7. Mest var lækkunin á vísitölunni sem mælir mat landans á atvinnuástandinu en hún lækkaði um heil 13,3 stig milli mánaða og mælist nú aðeins 48,7 stig. Á hinn bóginn hækkaði sú vísitala sem mælir mat á efnahagslífinu um 3,9 stig og mælist hún nú 53,7 stig.