Bernard Arnault forstjóri stærsta lúxusvöruframleiðandi heims, LVMH er vægast sagt svartsýnn á horfur í heimshagkerfinu. Í viðtali við CNBC síðastliðinn föstudag sagði hann stöðuna í hagkerfum heimsins vera ógnvænlega til meðallangs tíma.

Eins og fleiri sem hafa gagnrýnt stöðu efnahagsmála á undanförnum misserum rökstuddi hann orð sýn með því að verð á hlutabréfum væri hátt og að lágt vaxtarstig myndi á endanum hafa slæmar afleiðingar. „Ég held að bóla sé að myndast og einn daginn mun þessi bóla springa" sagði Arnault.

Arnault sem er forstjóri fyrirtækis sem á meðal annars vörumerkin Louis Vuitton. Möet og Hennesy gaf þó ekki upp neina tímasetningu á því hvenær bólan myndi springa en benti á að það gæti gerst fljótlega þar sem tíu ár væru liðin frá síðasta fjármálahruni og sagði að bólur ættu það til að springa á 10 ára fresti.

Þrátt fyrir almenna svartsýni um nánustu framtíð segist Arnault vera bjartsýn á horfur til langs tíma. Vonast hann til að tækniframfarir muni á endanum örva hagkerfi heimsins.