Svefnbyltingin, þverfaglegt og alþjóðlegt rannsókna- og þróunarverkefni, sem leitt er af Ernu Sif Arnardóttur, lektor við Háskólann í Reykjavík, hefur fengið vilyrði fyrir 15 milljónum evra styrk, sem samsvarar um 2,5 milljörðum króna, til fjögurra ára úr Horizon 2020 rammaáætlun ESB fyrir rannsóknir og nýsköpun.

Í fréttatilkynningu HR, segir Ari Kristinn Jónsson, rektor, styrkinn vera enn eina staðfestingu á sterkri stöðu Háskólans í Reykjavík í alþjóðlegu rannsóknaumhverfi og gæðum þeirra rannsókna sem stundaðar séu innan veggja háskólans.

„Samkeppnin um svona styrki er gríðarlega hörð og mikil. Það er því mikið afrek hjá ungum vísindamanni að fá styrk í fyrstu tilraun og það með fullt hús stiga hjá matsnefndinni. Við erum afskaplega stolt af þessum árangri og hlökkum til áframhaldandi uppbyggingar svefnrannsókna við HR á næstu árum, í góðu samstarfi við innlenda og erlenda samstarfsaðila," segir Ari í tilkynningunni.

Að rannsóknunum koma vísindamenn við verkfræði-, tölvunarfræði-, sálfræði- og íþróttafræðideildir Háskólans í Reykjavík, íslensku fyrirtækin Nox Medical og Sidekick Health, sem og hátt í fjörutíu samstarfsaðilar í evrópskum háskólum, heilbrigðisstofnunum og fyrirtækjum ásamt áströlskum háskóla.

Um helmingur styrksins verður nýttur til rannsókna hér á landi, meðal annars til að byggja upp öruggan gagnagrunn með niðurstöðum úr svefnmælingum á 30.000 einstaklingum sem safnað verður á Íslandi og víðsvegar um Evrópu.

Nota gervigreind til rannsókna á kæfisvefni

Erna Sif er lektor við verkfræði- og tölvunarfræðideildir HR og forstöðumaður Svefnseturs sem nýlega var sett á fót með styrk frá Innviðasjóði. Hún er einnig formaður Íslenska svefnrannsóknafélagsins og situr í stjórn Evrópska svefnfélagsins ( European Sleep Research Society ), sem er samstarfsaðili í verkefninu. Erna segir það mikinn heiður að fá þetta tækifæri til að leiða helstu sérfræðinga Evrópu á sviði svefnrannsókna og nýsköpunar á því sviði.

„Verkefnið er mjög umfangsmikið, enda er markmiðið að nota þverfaglega nálgun og nýja möguleika í upplýsingatækni og gervigreind til að umbylta því hvernig rannsóknir á kæfisvefni og öðrum svefnháðum öndunartruflunum, svo sem miklum hrotum, eru gerðar og nýttar. Við ætlum einnig að færa áhersluna í greiningu og meðferð þessara sjúkdóma yfir á daglegt líf einstaklinga og stuðla þannig að persónubundinni heilbrigðisþjónustu. Það verður meðal annars gert með því að þeir einstaklingar sem taka þátt í rannsóknunum munu hafa aðgang að sínum gögnum í gegnum mjög notendavæn kerfi sem hvetja notandann til að gera breytingar á hegðun og lífsstíl til að koma í veg fyrir heilsufarsvandamál," segir Erna Sif í tilkynningu HR.

Samkvæmt tilkynningunni munu áhrif tveggja meðferða við kæfisvefni, sem miða að breytingum á lífsstíl, verða könnuð, sem og gildi snjallúra við greiningu og meðferð svefnvandamála. SideKick Health mun vinna að hönnun smáforrits fyrir lífsstílsmeðferð við kæfisvefni.

Erna Sif segir í tilkynningunni þær greiningaraðferðir sem notaðar eru í dag, til að greina kæfisvefn og aðrar svefnháðar öndunartruflanir, vera úreltar. Með því að bæta aðferðir og auka sjálfvirkni er ætlunin að auka getu heilbrigðiskerfa til að mæla fleiri einstaklinga sem þurfa á svefnmælingu að halda.