Í dag var haldinn fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs árið 2017. Þetta kemur fram í frétt fjármálaráðuneytisins . Ráðið er formlegur samstarfsvettvangur stjórnvalda um fjármálastöðugleika. Enn fremur er það vettvangur samráðs, upplýsingaskipta og stefnumótunar vegna fjármálastöðugleika og samhæfir ráðið viðbúnað opinberra aðila við fjármálakreppu.

Þjóðhagslegar aðstæður hagstæðar

Í yfirferð á því hvað fjallað var um á fundinum kemur meðal annars fram að töluverð óvissa er um áhrif þess að fjármagnshöft voru losuð síðastliðinn mars, næst að fullu á einstaklinga.

Þó séu þjóðhagslegar aðstæður í meginatriðum verið fjármálakerfinu hagstæðar undanfarin misseri: „Hagvöxtur er mikill og atvinnuleysi er komið vel undir áætlað langtímaatvinnuleysi. Skuldahlutfall heimila og fyrirtækja lækkar enn. Útlánavöxtur hefur verið hóflegur og kjör innlendra aðila á erlendum lánsfjármörkuðum hafa batnað. Erlend staða þjóðarbúsins er hin hagstæðasta í sögu landsins svo langt sem sambærileg gögn ná og einnig tiltölulega hagstæð miðað við önnur þróuð ríki. Afgangur af utanríkisviðskiptum hefur verið óvenjumikill þrátt fyrir gengishækkun krónunnar. Á hinn bóginn gætir vaxandi spennu í hagkerfinu, sem einkum kemur fram á húsnæðis- og vinnumarkaði. Húsnæðisverð hefur hækkað hratt frá síðasta fundi fjármálastöðugleikaráðs og að raunvirði er það orðið nánast jafn hátt og rétt fyrir fjármálaáfallið haustið 2008. Byggingakostnaður hefur ekki hækkað jafn hratt og húsnæðisverð og því verður sífellt hagstæðara að byggja húsnæði. Hækkandi húsnæðisverð gæti aukið á áhættu í fjármálakerfinu síðar meir. Viðnámsþróttur viðskiptabankanna er þó góður, hvort heldur horft er til eiginfjárhlutfalla eða lausafjárstöðu.“

Sveiflujöfnuauki óbreyttur

Ákveðið var á fundinum að beina þeim tilmælum til Fjármálaeftirlitsins að halda sveiflujöfnuauka óbreyttum við 1,25%.

„Fjármálasveiflan hefur haldið áfram að rísa með svipuðum hraða og áætlað var á síðasta fundi kerfisáhættunefndar. Þess má vænta að fjármálastöðugleikaráð muni leggja til að uppbyggingu sveiflujöfnunaraukans verði haldið áfram á næstu misserum í takt við ris fjármálasveiflunnar,“ segir í fréttinni.

Áfram kerfislega mikilvægir eftirlitsskyldir aðilar

Einnig var samþykkt að Íbúðalánasjóður, Arion banki hf., Landsbankinn og Íslandsbanki teldust áfram kerfislega mikilvægir eftirlitsskyldir aðilar.

Eiginfjárauki á kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki, það er bankana þriggja, skal jafnframt haldast óbreyttur að sögn fjármálastöðugleikaráðs.

Jafnframt var rætt um kaup fjögurra fjárfestingasjóða á tæplega 30% hlut í Arion banka, sem marka upphaf breytinga á eignarhaldi á hlutafé í bankanum.