Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst nokkuð á milli vikna í vikunni eftir að hafa dregist saman í vikunni á undan. Síðustu sex vikur hafa verið nokkuð rokkandi í veltu en veltan á einni viku hefur verið á bilinu 860 milljónir króna upp í tæpar 2.900 milljónir króna.

Þannig nam veltan í vikunni 1.940 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 1.360 milljónir króna veltu í vikunni á undan og jókst því um 43% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkaði í vikunni, eftir að hafa hækkað í fjórar vikur þar á undan, og er nú 1.986 milljónir króna. Fjögurra vikna meðalvelta hefur þó hækkað um tæpar 500 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú aukist um 37% á milli ára en hafði á sama tíma í fyrra hækkað um 41% á milli ára.

Tólf vikna meðalvelta jókst hins vegar um 40 milljónir króna á milli vikna í vikunni og nemur nú 1.806 milljónum króna. Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.649 milljónir króna á viku og hefur aukist um 17% á milli ára.

Í síðustu viku:

Alls var 76 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 56 samninga í vikunni á undan. Alls var 56 samningum þinglýst að meðaltali á viku á síðasta ári en 59 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning nam 25,5 milljónum króna í vikunni, samanborið við 24,3 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 28,2 milljónir króna en 28,2 milljónir króna það sem af er ári.

Meðaltal síðustu 12 vikna er 28,8 milljónir króna á hvern samning.