Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur samið drög að breytingum á byggingarreglugerð. Drögin má lesa hér . Þá verða breytingartillögurnar kynntar eftir að umsagnir um tillöguna verða metnar.

Gangi breytingarnar eftir verður framkvæmdum sem undanþegnar eru byggingarleyfi fjölgað, auk þess sem nákvæmar stærðarkröfur íbúða verði felldar niður. Þá verður sveigjanleiki aukinn og ákvæði reglugerðar einfölduð.

Stærðarkröfum vegna snúningshrings hjólastóla verður breytt, sveigjanleiki aukinn varðandi bílastæði fyrir fatlaða auk þess sem kröfur varðandi stiga og handrið verði einfaldaðar.

Þá er einnig gerð tillaga um að rýmka kröfur um lofthæð og birtuskilyrði, dregið verði úr kröfum um svalir og bætt verði við nýju búsetuformi þar sem minni kröfur verði gerðar um aðgengi.

Loks verði ákvæði um sorpgeymslur og sorpflokkun einfölduð og breytingar gerðar á kröfum um loftræsingu.