Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir verður oddviti blandaðs lista Framsóknar og flugvallarvina í borgarstjórnarkosningunum í vor. Þetta var kynnt á aukakjördæmisfundi Framsóknarflokksins í dag. Sveinbjörg er héraðsdómslögmaður og varaþingmaður Framsóknarflokksins. Hún er jafnframt formaður Landssambands framsóknarkvenna.
Sveinbjörg skipaði 3. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í síðustu alþingiskosningum. Sveinbjörg Birna er fædd í Reykjavík 1973, stúdent frá Verzlunarskóla Íslands, lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 2001 og fékk héraðsdómslögmannsréttindi 2002.