Sveinn Reynisson er genginn til liðs við Íslenska endurskoðendur og hefur bæst í hóp hluthafa hjá félaginu.

Sveinn mun stýra endurskoðunarsviði félagsins en hann starfaði áður sem verkefnastjóri á endurskoðunarsviði hjá KPMG.

Hann er löggiltur endurskoðandi og er með B.Sc. gráðu í fjármálum frá The University of Arizona og M.Acc gráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskóla Íslands.