Sveinn I. Ólafsson mun gegna starfi framkvæmdastjóra sameinaðs félags Verkís og Almennu verkfræðistofunnar undir nafni Verkís. Sveinn hefur gegnt stöðu Verkís að undanförnu en árið 2008 sameinuðust 5 verkfræðistofur undir nafni Verkís. Nú bætist því sjötta félagið við en beðið er samþykkis Samkeppniseftirlitsins.