Sveitarfélögin hafa verið rekin með halla undanfarin tíu ár á sama tíma og ríkissjóður hefur yfirleitt verið með afgangi og var tekjuafgangurinn mestur á síðasta ári eða 4% af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins.

Mestur var hallinn á sveitarfélögunum árið 2004 eða 10 milljarðar króna sem jafngildir 1,1% af landsframleiðslu. Það ár voru heildarútgjöld sveitarfélaganna tæp 9% umfram heildartekjur þeirra. Í fyrra er áætlað að tekjuhallinn hafi verði heldur minni eða 0,6% af landsframleiðslu sem er svipaður halli og gert er ráð fyrir í ár. Hallarekstur þýðir m.ö.o. að sveitarfélögin eru jafnt og þétt að safna skuldum. Áætlað er að skuldir sveitarfélaganna í heild nálgist 150 milljarða króna í ár, sem er umfram árstekjur þeirra.

Samanburður á rekstri ríkissjóðs og sveitarfélaga er gerður til að benda á að ekki sé hægt að einblína á ríkissjóð heldur verði einnig að taka tillit til sveitarfélaganna. Þá segir í vefritinu að undanfarið hafi "ýmsir aðilar tjáð sig um þörf á auknu aðhaldi í hagstjórninni ekki síst vegna þess að nýjustu hagtölur benda til meira ójafnvægis í efnahagslífinu en fyrri hagtölur gáfu til kynna."

"Í ljósi þessa hefur Seðlabankinn að undanförnu hækkað stýrivexti í stærri skrefum en áður. Þá hefur verið talað um að auka beri aðhald í opinberum fjármálum."

Bent er á að af einstökum útgjaldaþáttum ræður umfang fjárfestingar sveitarfélaganna miklu um afkomu þeirra hverju sinni. "Á árinu 2004 nam fjárfesting þeirra t.d. um 20 milljörðum króna eða ríflega 17% af heildartekjum þeirra. Á yfirstandandi ári er áætlað að fjárfesting mælist rúmlega 11% af heildartekjum sem skýrir að hluta til minni tekjuhalla. Þar sem umfang sveitarfélaganna í hinum opinbera búskap er nú nálægt 30% er mikilvægt að þau séu meira samstíga ríkissjóði í fjármálaaðgerðum sínum og hægi á vexti útgjalda þegar tekjur þeirra aukast hratt. Með því geta þau greitt niður skuldir og styrkt fjárhagsstöðu sína og stuðlað að stöðugleika í efnahagslífinu."