Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur fagnar því að stjórn Gildis lífeyrissjóðs hafi tekið þá ákvörðun að selja öll hlutabréf sjóðsins í HB Granda, nú Brim hf.

Á sjóðsfélagafundi Gildis þann 24. nóvember 2018 lagði Einar H.Harðarsson, formaður SVG, fram tillögu þess efnis. Tillagan var ígrunduð á vantrausti á H.B Granda í ljósi viðskiptafléttu fyrirtækisins sem gæti skaðað m.a. launarétt sjómanna.

"Stjórn SVG vill koma á framfæri þakklæti til stjórnar Gildis fyrir hönd stærsta sjómannafélags landsins," segir í tilkynningu frá félaginu.