Magðalena, prinsessa Svía, ól stúlkubarn í gærkvöldi. Barnið kom í heiminn í New York og segir á vef danska ríkisútvarpsins að bæði móður og barni heilsist vel. Þetta er fyrsta barn Magðalenu og Christophers ONeill, eiginmanns hennar.

Madeleine er fjórða erfðaröðinni um sænsku krúnuna á eftir Viktoríu, systur sinni, Stellu dótttur hennar, og Karls Filippusar bróður síns. Magðalena og Christopher giftu sig á síðasta ári og fljólega eftir brúðkaupið var tilkynnt að hún væri kona eigi einsömul.