Árni Björn Björnsson, Verkfræðingafélags Íslands og Tæknifræðingafélags Íslands, segir vísbendingar um að niðursveiflan í norskum olíuiðnaði hafi áhrif á verkefnastöðu íslenskra verkfræðinga í Noregi. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Árni Björn segir að um 40 prósent af umsvifum íslenskra verkfræðistofa séu erlendis og 90 prósent þeirra umsvifa séu í Noregi. Hann segist óttast að nú sé svikalogn hjá verkfræðingum og að framundan gætu verið uppsagnir vegna minnkandi umsvifa erlendis.