Vöruskipti voru hagstæð um 8,7 milljarða króna í september síðastliðnum. Þetta er 100 milljónum krónum minni afgangur en í september í fyrra, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Á fyrstu níu mánuður ársins nam afgangur af vöruskiptum 48,9 milljörðum króna sem er 4,3 milljörðum krónum minna en í fyrra.

Fram kemur á vef Hagstofunnar að verðmæti vöruútflutnings nam 55,3 milljörðum króna í mánuðinum en vöruinnflutnings 46,6 milljörðum króna.

Á fyrstu níu mánuðum ársins voru vörur fluttar út fyrir 453,9 milljarða króna en inn fyrir 409,3 milljarða.