Fiskistofa hefur svipt Valþór GK 123 leyfi til veiða í atvinnuskyni í fjórar vikur vegna framhjálöndunar. Veiðileyfissviptingin gildir frá og með 24. ágúst til og með 20. september, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá stofnuninni. Þetta er í annað sinn á þessu sumri að skipið er svipt veiðileyfi vegna framhjálöndunar.

Í ákvörðuninni kemur fram að við löndun úr skipinu þann 28. apríl 2021 hafi hafnarstarfsmaður orðið þess var að 572 kg. af þorski voru flutt af löndunarstað án þess að aflinn hafi verið veginn á hafnarvog. Ákvörðunin byggir á því að með þessu hafi verið brotið gegn 1. mgr. 6. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, en þar er mælt fyrir að allur afli fiskiskips skuli veginn á hafnarvog þegar við löndun og 1. mgr. 10. gr. sömu laga þar sem mælt er fyrir um að ekið skuli með landaðan afla rakleitt á hafnarvog. Viðurlög í málinu voru ákveðin með hliðsjón af ítrekunaráhrifum fyrri sviptingar á leyfi skipsins til veiða í atvinnuskyni vegna sambærilegs brots.

Skipið var einnig svipt leyfi til veiða í fjórar vikur fyrr í sumar vegna sambærilegs brots. Ítrekunaráhrifa vegna þeirrar sviptingar gætti ekki við ákvörðun viðurlaga í þessu máli þar sem ekki var komin ákvörðun um sviptingu á leyfi skipsins áður en hin ólögmæta háttsemi fór fram sem framangreind svipting tekur til.