Fjárfestingafélagið Quadia, sem hefur aðsetur í Sviss, hefur keypt hlut í Omnom Chocolate og verður þar með annar stærsti hluthafi félagsins. Omnom Chocolate er eina súkkulaðifyrirtækið á Íslandi sem framleiðir súkkulaði úr baun í bita. Verksmiðja Omnom og verslun, sem var opnuð í júlí 2016, eru staðsett á hinu blómstrandi Grandasvæði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Omnom.

Aðrir eigendur Omnom Chocolate eru þeir Óskar Þórðarson framkvæmdastjóri og Kjartan Gíslason súkkulaðigerðarmeistari, en þeir eru jafnframt stofnendur fyrirtækisins. „Við erum afar ánægðir með aðkomu þess svissneska félags að Omnom. Með aðkomu Quadia getum við styrkt innviði fyrirtækisins og við munum eiga gott bakland í þeim fyrir áskoranir framtíðarinnar. Omnom er í miklum vexti og með innkomu Quadia fáum við aðgang að gríðarlegri reynslu fjárfestingarhóps, sem sérhæfir sig í að fjárfesta og vinna með fyrirtækjum sem vilja hafa samfélagsleg áhrif,“ segir Óskar.

Quadia hefur aðsetur í Genf í Sviss og er þar að auki með skrifstofur í London. Fyrirtækið sérhæfir sig í fjárfestingum sem hafa umhverfisvernd, sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi en Quadia er frumkvöðull þegar kemur að fjárfestingum í umhverfisvænni orku og sjálfbærri matvælaframleiðslu. Nú þegar hefur Quadia fjárfest fyrir 150 milljónir dollara í 25 fyrirtækjum víðsvegar um heiminn.

Haft er eftir Severine Blacik, fjárfestingastjóra hjá Quadia í tilkynningunni: „Um leið og við hittum teymið, sem hefur nú þegar byggt upp eftirtektarvert vörumerki og fyrirtæki án nokkurra utanaðkomandi fjárfestinga, urðum við ástfangin af þeim og vörunum þeirra og vildum hjálpa þeim að vaxa. Við ákváðum að fjárfesta í fyrirtækinu til að styrkja það við hráefnisöflun og færa það nær fullri sjálfbærni, sem og að færa það meira út á alþjóðamarkað. Við erum mjög spennt fyrir þessari nýju fjárfestingu og við erum sannfærð um að saman munum við vaxa og stækka.“