Dregið hefur úr svartri atvinnustarfsemi samkvæmt skýrslu ríkisskattstjóra, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Þetta var sameiginlegt átak sem bar yfirskriftina „Leggur þú þitt af mörkum?“ Starfsstöðvar voru heimsóttar í fyrrasumar og leiðbeiningar veittar um tekjuskráningu og upplýsingar um skyldur rekstraraðila. Áberandi var hversu mikið þekkingarleysi er á reglugerðum um tekjuskráningu, virðisaukaskatt og staðgreiðsluskilum. Í vetur héldu heimsóknirnar áfram og niðurstöðurnar voru áfram í sama dúr, jákvæðar.