Sylvía Rut Sigfúsdóttir hefur nú störf sem ný ritstýra Pressunar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Pressunnar.

Sylvía hefur starfað hjá Vefpressunni frá júní 2013, sem blaðamaður og var hún svo ráðin sem ritstýra Bleikt. Tekur hún við starfinu af Kristjóni Kormáki Guðjónssyni sem hefur verið ráðinn ritstjóri DV og DV.is.

Í fréttinni er haft eftir Sylvíu Rut að hún hlakki mjög til þess að takast á við þessa áskorun. Hún þakkar jafnframt Birni Inga Hrafnssyni og Arnari Ægissyni traustið og telur þetta spennandi tækifæri.

Sylvía Rut er með meistaragráðu frá Kaupmannahafnarháskóla. Hún er gift Snorra Sigurðssyni verkfræðingi og eiga þau saman tvo syni.