Á heimasíðunni keldan.is ,  upplýsinga- og fjármálavef, er nú hægt að skoða samanburð á verðlagningu olíufélaganna á eldsneyti. Í tilkynningu frá Keldunni segir að hægt sé að bera saman olíuverð hvar sem er á landinu.

Af lista keldunnar má lesa að lítraverð á 95 oktana bensíni er í dag lægst hjá Orkunni, eða 193 krónur. Hæst er verðið hjá Shell þar sem bensínlítrinn er 1,5 krónu dýrari. Engin munur er á verði bensínstöðvanna eftir landshlutum.