Einn milljarð Bandaríkjadala þarf til að bjarga heilli kynslóð sýrlenskra barna og tryggja þeim mannsæmandi framtíð. Þetta mat kemur fram í tilkynningu Barnaheilla – Save the Children og nokkurra annarra mannúðarsamtaka.

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hafa ásamt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannastofnun SÞ, World Vision og fleiri mannúðarsamtökum, biðlað til ríkisstjórna um allan heim að leggja sitt af mörkum til að tryggja sýrlenskum börnum aðstæður sem bjóða upp á tækifæri til framtíðar og líf án örvæntingar.

Fjáröflunarátakið nefnist „Engin týnd kynslóð“ (No Lost Generation). Því er hrundið af stað nú þegar vika er í alþjóðlega fjáröflunarráðstefnu í Kuwait af sama tilefni. Almenningur er einnig beðinn að leggja sitt af mörkum til að hjálpa sýrlensku börnunum úr þeim hörmulegu aðstæðum sem þau búa við.

„Nú þegar tæp þrjú ár eru liðin frá upphafi átakanna í Sýrlandi og við vitum hvernig ástandið er, getum við ekki setið hjá og leyft heilli kynslóð barna að hverfa,” segir Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, í tilkynningu „Af Sýrlensku þjóðinni eru það börnin sem eru viðkvæmust fyrir ástandinu. Þau hafa séð fjölskyldu og vini drepna, skóla eyðilagða og vonir hverfa. Börnin eru einnig útsett fyrir alls kyns misnotkun, eins og vinnuþrælkun og því að vera gerð að barnahermönnum með stríðandi fylkingum.“

Fjármagnið rennur í verkefni sem tryggir börnum örugga menntun, vernd gegn misnotkun og ofbeldi og sálfræðistuðning fyrir þau börn sem á þurfa að halda.