Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum hafnaði í dag kröfu Brims hf. um að setja lögbann á hluthafafund í Vinnslustöðinni hf. á morgun. Kemur þetta fram í frétt á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar.

Jafnframt synjaði sýslumaður kröfu Brims um að Vinnslustöðinni væri gert að greiða málskostnað að mati sýslumanns og annan kostnað sem gerðarbeiðandi (Brim) hefði af málinu.