Systkinin Friðbjörn Garðarsson hæstaréttarlögmaður, Friðrik Garðarsson læknir og Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur munu skipa lið Hornafjarðar í spurningakeppninni Útsvari á RÚV.

Spurningakeppnin hefst í kvöld þegar Grindavík mun etja kappi við Hafnarfjörð. Hornafjörður mun hins vegar hefja keppni næstu helgi gegn Kópavogi.

Friðbjörn Garðarsson, einn liðsmanna Hornafjarðar, er ekki ókunnur spurningakeppnum en hann lagði Stefán Pálsson, spurningahöfund Útsvarsins, í Meistaranum á Stöð 2 árið 2006. Hvort Stefán muni láta það bitna á Hornfirðingum í keppninni næstu helgi skal hins vegar ósagt látið.