Fjármálaeftirlitið hefur veitt fyrirtækinu T Plús starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki. T Plús er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í vörslu- og uppgjörsþjónustu verðbréfa. Fyrirtækið er í eigu Íslenskra verðbréfa, Saga Fjárfestingarbanka og Stapa lífeyrissjóðs.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Framkvæmdastjóri T Plús er Katrín Ýr Pétursdóttir og er fyrirtækið staðsett á Akureyri.

„T Plús býður upp á fjölmarga þjónustuþætti, allt frá varðveislu verðbréfa fyrir einstaklinga, fyrirtæki og fagfjárfesta upp í daglegan rekstur verðbréfakerfa fyrir fyrirtæki með stærri verðbréfaumsvif svo sem banka og verðbréfafyrirtæki.

Starfsfólk T Plús hefur margra ára starfsreynslu á sviði bakvinnslu, uppgjörsvinnu og vörslu verðbréfa. Fyrirtækið er staðsett á Akureyri en mun þjónusta landið allt, enda fara flest viðskipti fram með rafrænum hætti. T Plús mun auka atvinnumöguleika á Norðurlandi og fyrst um sinn munu sjö starfsmenn vinna hjá fyrirtækinu.

Katrín Ýr Pétursdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri T Plús. Katrín var áður framkvæmdastjóri Uppgjörssviðs Saga Fjárfestingarbanka og þar áður deildarstjóri hjá Arion verðbréfavörslu og Kaupþingi.

Katrín segir að T Plús hafi markað sér þá stefnu að veita bestu þjónustu sem völ er á fyrir sanngjarnt verð. ,,Fyrirtækið leggur gríðarmikla áherslu á að vernda hagsmuni viðskiptavina sinna og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra á milli viðskiptavina fyrirtækisins innbyrðis og eins á milli fyrirtækisins sjálfs og viðskiptavina þess,“ segir Katrín Ýr Pétursdóttir, framkvæmdastjóri T Plús,“ segir í tilkynningunni