Carbon Recycling International (CRI) er eina íslenska fyrirtækið sem tekur þátt í ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna og fulltrúa einkafyrirtækja á COP21 – fundinum um bindandi samning í loftslagsmálum sem nú fer fram í París. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Áhugi á tækni til að draga úr kostnaði við að minnka losun og nýta koltvísýring fer mjög vaxandi en CRI stendur mjög framarlega á þessu sviði að því segir í tilkynningunni.

Á Parísarfundinum hefur forstjóra fyrirtækisins, K.C. Tran, verið boðin þátttaka í hringborði forstjóra og stjórnarformanna, þar sem rædd verður ályktun um hvaða raunhæfar aðgerðir fyrirtækin hyggjast ráðast í til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá iðnframleiðslu.

Tæknin sem CRI hefur þróað snýst í grófum dráttum um að breyta koltvísýringsútblæstri (CO2)  í fljótandi eldsneyti.

„Með því að nota koltvísýring sem berst frá iðnaði og orkuverum sem hráefni til eldsneytisframleiðslu, er hægt að draga úr kostnaði við að minnka losun og draga jafnframt úr notkun jarðefnaeldsneytis í samgöngum og þar með koltvísýringslosun frá bílum," segir í tilkynningunni.

CRI var stofnað árið 2006 en verksmiðjan í Svartsengi var gangsett árið 2012. Þar er koltvísýringsútblæstri úr orkuveri breytt í fljótandi eldsneyti. Fyrr á árinu var verksmiðjan stækkuð . Önnur verksmiðja er í smíðum og mun rísa í Lünen , sem er nærri Dortmund í Þýskalandi.

„CRI á nú í viðræðum við aðila í Evrópu og Kína um að reisa sambærilegar verksmiðjur," segir í tilkynningunni.