Rafbílaframleiðandinn Tesla hefur bætt titlinum „Tæknikonungur Tesla" (e. Technoking of Tesla) við safn formlegra starfstitla forstjórans Elon Musk.

Þá hefur fjármálastjóranum Zachary Kirkhorn verið úthlutaður starfstitillinn „Meistari myntarinnar" (e. Master of Coin) að því er Reuters greinir frá.

Rafbílaframleiðandinn hefur ekki gefið út opinbera skýringu á þessum breyttu starfstitlum en á sama tíma og greint var frá ofangreindum titlabreytingum var sagt frá því að Jerome Guillen, sem áður var framkvæmdastjóri bifreiða, sé orðinn framkvæmdastjóri vöruflutningabifreiða hjá Tesla.