MMR kannaði nýlega viðhorf Íslendinga til þess fjölda flóttamanna frá Sýrlandi sem íslenska ríkið ætti að taka á móti á næstu tólf mánuðum. Í heild voru 88,5% þeirra sem tóku afstöðu sem sögðust vilja að íslenska ríkið tæki á móti einhverjum fjölda flóttamanna.

Töluverður mismunur reyndist hins vegar á fjölda þeirra flóttamanna sem svarendur töldu að landið ætti að taka á móti. Þannig voru 19,1% þeirra sem tóku afstöðu sem sögðu að taka ætti á móti allt að 50 flóttamönnum, 14,0% sögðu að taka ætti við allt að 150 flóttamönnum, 25,2% nefndu að taka ætti við á bilinu 151 til 500 flóttamönnum og 30,2% sögðu að taka ætti á móti fleiri en 500 flóttamönnum.

Sé sá fjöldi flóttamanna sem svarendur töldu að Ísland ætti að taka á móti frá Sýrlandi á næstu 12 mánuðum greindur frekar má sjá að 10,7% töldu að Ísland ætti að taka á móti allt að 250 flóttamönnum, 14,5% nefndu allt að 500 flóttamenn, 9,0% nefndu 501-1000 flóttamenn, 6,5% nefndu 1001-2000 flóttamenn og 14,8% þeirra sem tóku afstöðu töldu að ísland ætti að taka við yfir 2000 flóttamönnum.

Fylgismenn Bjartrar framtíðar hlynntastir móttöku

Nokkur munur reyndist á viðhorfi svarenda til fjölda flóttamanna sem Ísland ætti að taka á móti eftir stuðningi þeirra við stjórnmálaflokka. Af þeim sem studdu ríkisstjórnina og tóku afstöðu voru 42% sem sögðu að taka ætti á móti engum eða allt að 50 flóttamönnum á næstu 12 mánuðum samanborið við 23% þeirra sem ekki studdu ríkisstjórnina. Þá voru 23% þeirra sem studdu ríkisstjórnina sem nefndu að taka ætti á móti fjölda sem væri yfir 250 samanborið við 54% þeirra sem ekki studdu ríkisstjórnina.

Af stuðningsmönnun einstaka stjórnmálaflokka reyndust fylgismenn Bjartrar framtíðar hlyntastir því að taka á móti miklum fjölda flóttamanna en 36% stuðningsmanna flokksins sögðu að taka ætti á móti fleiri en 2000 flóttamönnum. Á móti reyndust fylgjendur Framsóknarflokksins síst þá því að taka á móti flóttamönnum, en 18% þeirra töldu að taka ætti við engum flóttamönnum frá Sýrlandi á næstu 12 mánuðum.

Nánar má lesa um niðurstöður könnunarinnar hér.