Þinglýstir kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu voru samtals 99 í vikunni 14. - 20. desember. Þar af voru 80 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 9 samningar um aðrar eignir en íbúðarhúnsæði.

Heildarveltan var 3.086 milljónir króna en á svipuðum tíma í fyrra var heildarveltan 2.376 milljónir króna. Meðalupphæð á hvern samning var 31,2 milljónir króna.