Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar hækkaði um 1,42% í Kauphöllinni í dag í tæplega 1,1 milljarðs króna viðskiptum.

Á móti lækkaði gengi bréfa Marels um 0,64% í rúmlega 2,8 milljóna króna viðskiptum.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,19% og endaði hún í 1.075,7 stigum. Hún hefur ekki verið hærri síðan um mánaðamótin.