Atvinnuleysi í Grikklandi mældist 14,8% í desember en var 13,9% í nóvember. Í desember 2009 var atvinnuleysi í landinu 10,2%. . Þetta kemur fram í gögnum frá ELSTAT, hagstofu Grikklands.
Fjöldi atvinnulausra Grikkja var í lok síðasta árs var 733.645 og hefur atvinnuleysi í landinu ekki mælst hærra í 5 ár.
Á mánudag lækkaði Moody´s lánshæfismat landsins um þrjá flokka. Í kjölfarið hækkaði skuldatryggingarálagið á skuldir landsins verulega.