391 milljóna króna velta var með bréf í VÍS í dag og hækkaði gengi béfa um 1%. Þá var 264 milljóna króna velta með bréf í Icelandair Group og lækkaði gengi bréfa um 1,11%. 152 milljóna króna velta var með bréf í N1 og 109 milljóna króna velta með bréf í Sjóvá. Minni velta var með bréf í öðrum félögum.

Mest velta á skuldabréfamarkaði var með bréf í HFF 24, en veltan nam 1031 milljónum króna. Ávöxtunarkrafa á bréf í þeim flokki hækkaði um 10 punkta.