Heimili í vanskilum við Íbúðalánasjóð eru tæplega 4.600 og þar af eru 644 heimili með frystingu á lánum sínum. Alls voru því 9,1% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með lánin í vanskilum í lok apríl 2013.

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í apríl 2013 námu 703 milljónum króna en þar af voru um 699 milljónir króna vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í apríl 2012 um 700 milljónum króna. Meðalfjárhæð almennra lána var 9,2 milljónir króna. Kemur þetta fram í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.

Greiðslur Íbúðalánasjóðs vegna íbúðabréfa og annarra skuldbindinga námu rúmum 9 milljörðum króna í apríl. Uppgreiðslur námu 1,3 milljörðum króna.

Í lok apríl 2013 hafði hlutfall lána í vanskilum einstaklinga enn lækkað frá því að vanskil í lánasafni Íbúðalánasjóðs náðu hámarki í júlí síðastliðnum.

Í lok apríl nam fjárhæð vanskila útlána til einstaklinga 4,6 milljörðum króna og var undirliggjandi lánavirði 86,7 milljarðar króna eða um 13,04% útlána sjóðsins til einstaklinga. Þetta samsvarar 0,14% lækkun frá fyrra mánuði og var undirliggjandi hlutfall lánafjárhæðar í vanskilum í lok apríl 0,18% lægra en sama hlutfall í apríl 2012.

Í lok apríl nam fjárhæð vanskila útlána til lögaðila alls um 2,9 milljörðum króna og nam undirliggjandi lánavirði 33,5 milljörðum króna. Tengjast því vanskil um 22,4% lánafjárhæðar sjóðsins til lögaðila, sem samsvarar 0,4% lækkun frá fyrri mánuði en er 0,9% hærra hlutfall en í lok apríl 2012. Vanskil eða frystingar ná samtals til 14,76% lánasafnsins, en sambærilegt hlutfall í apríl 2012 nam 14,74%.

Af þeim 2.416 fasteignum sem Íbúðalánasjóður átti í lok apríl hefur 1.984 eignum verið ráðstafað í útleigu, sölumeðferð eða annað. Þá biðu 432 eignir frekari greiningar. Margar þeirra eru á svæðum þar sem nokkurt offramboð er af eignum til sölu og/eða leigu.