Árið 2017, voru að jafnaði 17.599 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 658, eða 3,9% frá árinu 2016. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 188.600 einstaklingum laun og fjölgaði þeim um 8.500 eða 4,7% frá fyrra ári.

Launþegum fjölgar milli ára í byggingariðnaði og ferðaþjónustu, en þeim fækkar í sjávarútvegi að því er Hagstofan greinir frá. Í desember 2017 voru 2.744 launagreiðendur og um 13.100 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.700, eða 15% samanborið við desember 2016.

Í desember voru 1.803 launagreiðendur og um 25.900 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 1.600, eða 6% á einu ári. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fjölgað um 7.500, eða 4%.

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.