Utanríkisráðuneytið greiddi samtals 48,3 milljónir í ráðgjafaþjónustu á tímabilinu 1. júlí 2013 til 15. mars á þessu ári. Þetta kemur fram í svari Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra við fyrirspurn Svandísar Svavarsdóttur.

Þar af nam kostnaður vegna vinnu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands að skýrslu um úttekt á stöðu aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið og þróun sambandsins um 27,4 milljónir króna og kostnaður vegna ráðgjafarþjónustu almannatengslafyrirtækisins Burson-Marsteller í tengslum við makríldeiluna nam um 10,6 milljónir króna.