Tæplega 51% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum Þjóðarpúls Gallup.

Fylgi flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,1-1,9 prósentustig, og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar. Næstum 24% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, nær 15% Samfylkinguna, 13% Vinstri græn, rösklega 11% Miðflokkinn og nær sama hlutfall Pírata, liðlega 10% segjast myndu kjósa Viðreisn, tæplega 9% Framsóknarflokkinn, rúmlega 4% Flokk fólksins og 3% Sósíalistaflokk Íslands.

Tæplega 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og ríflega 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.