Velta með bréf fasteignafélagsins Reginn námu 548 milljónum króna í dag og hækkaði gengi bréfa um 0,62%. Velta með bréf í Högum nam 223 milljónum króna og hækkaði gengið um 0,74%.

Gengi bréfa í flestum fyrirtækjum hækkaði en lítil viðskipti voru á hlutabréfamarkaði í dag. Á eftir Högum var Eimskip með mestu veltuna en þar var hún 71 milljón króna.

Gengisvísitalan stendur nú í 1182 stigum og hefur ekki verið lægri síðan í nóvember.