Gengi bréfa í Icelandair hækkaði um 1,61% í 557 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa í TM hækkaði um 1,33% í 164 milljóna króna viðskiptum.

Hækkanir á gengi bréfa þessara tveggja fyrirtækja skýra að mestu leyti þá 0,6% hækkun sem varð á úrvalsvísitölunni í dag. Þá hækkaði gengi bréfa í Högum um 0,49% og gengi bréfa í Vodafone hækkaði um 0,33%. Þar eru hins vegar mjög lítil viðskiptyi að baki eða annarsvegar 19 milljónir og hins vegar 57 milljónir.

Mest lækkun varð á gengi bréfa Össurar í dag en það lækkaði um 1,17% í 25 milljóna króna viðskiptum.