Heldur fleiri leigusamningum var þinglýst á landinu í júlí síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Í síðasta mánuði var heildarfjöldi samninga á landinu 845 og fjölgar þeim  um 9% frá júlí í fyrra. Fjölgunin frá júní síðastliðnum nemur 11,6%, eftir því sem fram kemur á vef fasteignaskrár.

Á höfuðborgarsvæðinu þar sem flestum leigusamningum er jafnan þinglýst, var 557 samningum þinglýst í júlí síðastliðnum. Það er 3,7% aukning frá því í fyrra, þegar 537 samningum var þinglýst og 13,4% aukning frá því í júní síðastliðnum þegar 491 samningi var þinglýst.