47,2% eru fylgjandi því að ferðamönnum verði gert að kaupa náttúrupassa til að öðlast aðgengi að helstu ferðamannastöðum á Íslandi og 35,2% sögðust vera andvíg. Þá eru 35,2% andvíg því að ferðamönnum sé gert að kaupa náttúrupassa og 17,6% eru hvorki fylgjandi né andvíg. Þetta sýna niðurstöður MMR könnunar sem gerð var fyrir síðustu mánaðamót.

Spurt var: „Hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ert þú að ferðamönnum (íslenskum sem erlendum) verði gert að kaupa „náttúrupassa" til að öðlast aðgengi að helstu ferðamannastöðum á Íslandi?" Svarmöguleikar voru: Mjög andvíg(ur), frekar andvíg(ur), bæði og, frekar fylgjandi, mjög fylgjandi og veit ekki/vil ekki svara. Samtals tóku 98,1% afstöðu til spurningarinnar.

Þeir sem tilheyrðu elsta aldurshópnum voru líklegri til að vera hlynntir náttúrupassa en þeir sem yngri eru. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu elsta aldurshópnum (68 ára og eldri) sögðust 59,8% vera hlynnt náttúrupassa, borið saman við 41,1% þeirra sem tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára).

Þeir sem sögðust styðja ríkisstjórnina voru líklegri til að vera hlynntir náttúrupassa en þeir ekki studdu ríkisstjórnina. Af þeim sem tóku afstöðu og sögðust styðja ríkisstjórnina voru 55,0% fylgjandi náttúrupassa, borið saman við 44,6% þeirra sem ekki sögðust styðja ríkisstjórnina.

Könnunin var framkvæmd dagana 28. mars til 1. apríl 2014 og var heildarfjöldi svarenda 960 einstaklingar, 18 ára og eldri.